glataður bloggari
Kristófer er að halda smá strákaafmæli í dag, þeir fóru í laser tag og koma svo hingað í köku, pizzu og playstation 3 svaka stuð! hann verður víst 12 ára þessi litli minn, ótrúlegt hvað tíminn líður! svi er Ingibjörn að verða ári eldri 7. feb, spurning hvort ég nái ekki að halda eina afmælisveislu þá og sara fær svo sína veislu bara í apríl skvísan, hugsa að ég haldi ekki mörg boðin í mars.
Við erum svo að skoða rúm þessa dagana fyrir okkur, en ég er að verða nett geggjuð á þessu rúmi sem við erum í. Verst hvað rúm eru dýr þessa dagana, en það er eiginlega lágmark að eyða 200 þús í eitt stk rúm takk fyrir kaffið! en þá er líka best að velja vel svo það dugi næstu árin.
Ég sagði annars við Ingibjörn að það væru núna eftir helgi 3-7 vikur í litla barnið okkar og þá fattaði ég hvað það er í raun stutt í þetta! hehe crazy...
en jæja, best að gera allt klárt áður en krissi kemur með strákana hingað sveitta úr laser tag!
E.
26 vikur
Nóg að gera framundan eins og vant er, jólahlaðborð með vinnunni hans Ingibjörns, þrítugsafmæli og barnaafmæli næstu helgi, helgina eftir það erum við skötuhjúin að fara á hótel flúðir í eina nótt að borða góðan jólamat og slappa af, maðurinn minn er svo einstaklega séður að hann byrjaði að henda öllu klinkinu okkar í dollu í lok sumars og afraksturinn er helgarferð í sveitina jeee. Svo er það auðvitað afmæli hjá mömmu í des og Rebekka hans Snorra er tvítug líka um miðjan des þannig að nóg að gera eins og ávallt. Sem betur fer held ég að við séum búin með allar jólagjafir nema hvort annað og krakkana þannig að við verðum ekki á hlaupum í des að versla, það er öruggt. Það verður sko farið aftur í það að búa til piparkökuhús á heimilinu og ég yrði ekki hissa þó það verði með sama sniði og í fyrra, þeas stelpur á móti strákum, 2 hús gerð og svo verða gestir beðnir um að dæma hehe það sló alveg í gegn hjá krökkunum (og fullorðnum) í fyrra og var hin besta kvöldstund :) svo ætlum við að fara aftur að höggva jólatré en þeim fannst það algjört æði í fyrra og okkur öllum. Ég fæ bara fiðring að hugsa um þetta allt saman. Svo er Sigga min að koma heim um jólin og Íris og Rutlan mín líka, mikið hlakka ég til að hitta þær. Ég vildi óska þess að systir mín kæmi líka og við yrðum öll saman á jólunum en ég veit að þau eiga eftir að hafa það svo notalegt úti líka, jólin okkar úti voru með bestu jólunum okkar og krakkarnir tala enn um það að þau vildi sko alveg vera úti yfir jólin, það er bara svo mikill friður og ró eitthvað, ekkert stress og bara hátíðlegt, fannst mér allavega. Þau fá svo mömmu og pabba út yfir áramótin sem verður voða næs. Aldrei að vita nema með þessu áframhaldi að við náum pabba alla leið til flórída yfir öll jólin og verðum bara öll þar og höfum það gott blikk blikk ;)
Af Krissa er allt ágætt að frétta en mætti því miður vera betra. Strákurinn er ekki að ná að þyngjast því miður, léttist bara og við viljum það sko alls ekki! Lúther læknir vildi leggja hann inn í síðustu viku en gaf okkur aðeins meiri tíma, ég ætla að reyna að komast til hans í þessari viku og þá bara er ekki um neitt annað að ræða en að gefa stráknum smá orku, næringu í æð eða sondu. Vonum það besta samt því það er djöfuls vesen að standa í því og ég vill helst að strákurinn minn geti gert þetta sjálfur. Lúther er líka að hugsa um að skipta um lyf líka en það hefur líka sína ókosti þannig að það verður að vega og meta. Krissi er hins vegar voða duglegur, mætir vikulega nánast í blóðprufur og er farinn að gefa þeim einkunnir konunum, sumar kunna þetta en aðrar eru svolitlar brussur hehe verst þykir honum þó þegar þær ætla að bjóða honum bangsa til að halda á , hann heldur nú ekki! hehe
Jæja, þá verður víst lærdómurinn að halda áfram..
bið að heilsa
E.
styttist og styttist
Ég get ekki hætt að hugsa um það þessa dagana hvað mig langar mikið út í desember, hitta systur mína og hennar familíu, verst að það kostar of marga peninga eins og staðan er í dag. Get bara ekki beðið eftir að þau komi þegar litla krílið er komið og svona, þá verður sko fest!
Ingibjörn er á fullu í boot camp þessa dagana, ég þarf því að vera xtra góð við hann og bera voltaren á hann á kvöldin hihi
jæja farin í bólið
E.
fréttir
Jæja, enn ein tilraun til að vekja þetta blogg upp af dauðum :)
Eins og flest allir vita núna þá er von á fjölgun í þessari fjölskyldu vííí en von er á 5. meðlimnum í heiminn í lok febrúar. Ég er sem sagt komin 21 viku á leið núna og gengur það bara rosalega vel, hef ekki yfir neinu að kvarta enn sem komið er enda engin ástæða til að kvarta. Skólinn er á fullu bara og er komið frekar mikið stress í mig hvort ég hafi það af að klára þetta á "réttum" tíma. En það þýðir víst ekki að hafa áhyggjur af því alveg strax, pressan er komin og núna er bara að standa sig, ekkert væl.
Kristófer er búinn að vera í heilmiklu læknastússi greyið en það kom loks í ljós að hann er með sjúkdóm sem heitir chron´s. Hann endaði bara á spítala í rannsóknum og sem betur fer kom þetta í ljós þá. Hann er núna bara á lyfjum og við vonum það besta í framhaldinu. Þetta á ekki að þurfa að hafa nein áhrif á hans líf ef við gerum allt rétt og hann ætti að mestu að losna við öll einkenni bráðlega.
Er maður svo nokkuð kona með mönnum ef maður segir ekki eitthvað um þessa kreppu sem er í gangi? Við erum hins vegar svo ótrúlega heppin að við finnum líklega minnst fyrir þessu, við borgum okkar leigu, sem er reyndar há, borgum af okkar ekki erlenda bílaáni og leggjum fyrir rest. Við getum því ekki kvartað neitt ennþá, og mig grunar að við verðum ein af þeim fáu sem kannski græða eitthvað á þessu þar sem við getum líklega keypt okkur fasteign á brunaútsölu og haft það kannski aðeins betra í framtíðinni en ella.
Það er hins vegar margt í þessu öllu sem manni er farið að misbjóða. Til dæmis hegðun fólks. Ábyrgð Davíðs, Geirs og allra þessara karla og kvenna sem tengjast þessu búa yfir ákveðinni ábyrgð og skyldum í þessu máli. Kannski einna mest bera þeir ábyrgð á að hlusta ekki á þau hættumerki sem þeim berast. En ég get ekki séð að þegar við erum í miðju kafi þessa máls að það sé rétt af okkur að tala um afsagnir, ábyrgðarleysi og sökudólga. Þessir menn sem á þingi sitja hafa verið kosnir þangað inn. Á einhverjum tímapunkti treystum við þeim til að sjá um okkar samfélag á sem bestan hátt. Það álag sem er á þessu fólki er ekki öfundsvert og ég eiginlega vorkenni þeim hrikalega. Fyrir utan svefnleysi, andlegt álag og fleira er ekki þörf á að almenningur tali um svik og vantraust. Við verðum að sýna þeim traust til að standa í þessu á meðan á því stendur og leggja traust okkar á að þeir viti hvað þeir eru að gera. Þegar ég horfi á fólk standa fyrir utan seðlabanka og rétta Davíð fingurinn þá skammast ég mín. Hvað heldur fólk eiginlega að það muni breyta? Viljum við að ríkisstjórnin slitni í þessum átökum, að þessir embættismenn fái hreinlega taugaáfall og verði að fara frá borði? Hvern höfum við þá til að stýra okkur? Ég trúi því að þegar þetta er yfirgengið getum við kennt ýmsum um, en við getum líka þakkað fleirum fyrir að hjálpa okkur að rétta úr kútnum. Þeir sem eiga sök í þessu máli erum líka við sem höfum dregist með í öllu peningaflæðinu, stóru húsunum, flottu innréttingunum, utanlandsferðunum og lántökunum.
Nú er bara komið að því að við verðum að bíða af okkur storminn. Ég held að það mikilvægasta sem við getum gert í þessari stöðu núna er að hugsa um náungann. Það þýðir ekki að við þurfum að gefa meira af okkur en við getum, en ég er að tala um þakklæti. Þakklæti til þeirra starfsmanna sem hugsa um börnin okkar á leikskólanum, segja kennara barnanna okkar að barninu okkar líði vel í skólanum og sé ánægt, brosa og þakka fyrir okkur þegar við verslum út í búð, bara sýna almennt kurteisi og þakklæti. Ég trúi því að það skili sér þannig að fólk fer heim til sín eftir erfiðan vinnudag og sé glatt í hjarta og það slái jafnvel aðeins á áhyggjur fólks sem glímir við það. Nú er um að gera að vinnustaðir taki sig saman, hafi vinavikur, þemavikur, minni á hrós og þakklæti alla daga því það er jú ókeypis.
Svo getum við tekið uppáhalds geisladiskinn okkar með út í búð og sungið hátt með þegar við keyrum um göturnar, það léttir alveg ótrúlega lundina!
Dóttir mín fór í skólann í morgun og brosti og sagði: nú er ég létt í lundu! Hehe mér fannst það yndislegt, hún meinti reyndar að taskan hennar væri létt en bara að heyra hana segja þetta kom mér brosandi inn í daginn. Ímyndið ykkar hvað bros og þakklæti gera? Ég skora á alla að vinna í þessu 
Bróðir hans Ingibjörns og kærasta eignuðust fallegan strák fyrir stuttu, hann er alveg svakalega yndisfríður sá litli :)
Vinnan er búin að vera fín, ekki spillir þetta góða veður undanfarið en maður er nú bara orðinn frekar útitekinn, best að æfa sig líka fyrir sólina í tenerife hehe
EM hefur verið frekar áberandi á þessu heimili undanfarnar vikur en það styttist í að það sé búið. Ég get nú ekki kvartað, Krissi hefur fengið að sitja með Ingibirni og glápa með honum og honum hefur þótt það algjört æði þannig að ég get ekki kvartað. Ingibjörn hefur svo tekið krissa með sér aðeins á völlinn í sumar en mig grunar að það sé verið að snúa Krissa yfir á KR hliðina hehe sjáum hvernig til tekst í lok sumars!
Krissi er núna í fótboltaskóla fyrir hádegi og fer svo á smíðavöllinn eftir háegi.. Sara skvís vildi ekki fara á neitt námskeið þessa vikuna þannig að hún hangir ein heima eitthvað. Hún hefur svo komið út á leikskóla til mín og hjálpað mér þar, henni finnst það alveg geggjað en hún er líka svo góð með börn, þau flokkast að henni og verða svo góð og stillt, hún les fyrir þau og leikur við þau, alveg æðisleg hehe.
Annað held ég að sé ekki í fréttum í bili, bið að heilsa.
E.
bloggeddíblogg
Fyrir það fyrsta er ég komin í sumarfrí en samt farin að vinna, svona er það að vera í skóla en þá þarf maður að vinna á sumrin. Ég fór nú ekki langt, bara yfir götuna á leikskólann þar. Það er ágætt en fullmikið skipulagsleysi fyrir minn smekk. Ég reyni bara að draga djúpt andann og muna að ég er nú bara tímabundið þarna í vinnu. hihi
Einkunnirnar eru byrjaðar að tínast inn, tvær 8 komnar, vantar enn tvær einkunnir eftir.
Núna eru bara 33 dagar til Tenerife og eitthvað aðeins meira til köben, en við lengdum ferðina og verðum í alveg 11 daga hjá ólöfu vei vei vei! get bara ekki beðið að hitta þau og knúsa skólastrákana mína úti. Ég hlakka líka svo til að heimsækja Rut mína og fá einn kokteil og knúsa Árna og Kristínu og Svein Egil.
Krakkarnir eru komin í sumarfrí en það voru skólaslit í dag. Nú er bara að predika nóg yfir þeim svo þau hangi ekki yfir tv inu alla daga hér heima.
um helgina er stefnan tekin á að fara upp í bústað aðeins og slappa af og hafa það gott. Inga Rún er líka að skíra prinsinn sinn og verður spennandi að vita hvaða flotta nafn hann fær.
Ég bið bara að heilsa núna í bili :)
E.
Það mætti segja að ég sé búin að vera nokkuð öflug á þessu bloggi undanfarið, amk miðað við árangur síðustu mánuða.
Skólinn rúllar áfram og nú er að fara að hefjast verkefnatörn þar sem ég þarf að raða mér niður í hópavinnu og fleira. Mér finnst nú eiginlega skemmtilegra í hópverkefni en einstaklings en fínt líka að hafa bæði.
Eins og staðan er núna þá eru 2 ritgerðir, úrdráttur, ein málstofa, 2 hópverkefni um úttektir á fyrirtækjum, ein gagnrýni og 2 próf eftir af þessari önn. hmmm.. og hvað.. 8 vikur til stefnu! jahá.. ég verð bara að muna að margt skemmtilegt er framundan í sumar og svona! Sara talar endalaust um ferðina til tenerife, hvað hún ætli að gera, hvaða föt hún þarf að hafa með sér og fleira hehehe. Hún er búin að vera mikil mömmustelpa síðustu vikur, held að þetta sé farið að hafa smá áhrif á hana, hún biður mig um að kúra hjá sér á kvöldin og það er mikil serímónía um að ég þarf að koma og kyssa hana og knúsa þegar hún fer að sofa hehe svo eru það kósý kvöldin sem eru heilög hjá henni en það fór mikið fyrir brjóstið á henni síðasta laugardagskvöld að mamman þurfti að læra og ingibjörn horfði á laugardagsslögin og krissi hékk inn í herbergi, litla skottan var ekki sátt við að við lægjum ekki bara öll í hrúgu að horfa á mynd og borða nammi hehe
við skötuhjúin kíktum reyndar í bíó um helgina, ég fékk sem sagt smá frískt loft hehe sáum no country for old men, góð mynd, gaman að sjá öðruvísi myndir öðru hvoru og eiginlega því meira sem ég hugsa um myndina því betri finnst mér hún, þarf greinilega að láta hlutina síast hægt og rólega inn hjá mér! það er kannski aldurinn, veit ekki. Myndin var allavega góð og vel að verðlaununum komin.
Styttist í að strákarnir mínir komi, talaði við þá í fyrradag og þeir ætla víst bara að koma og gista hjá okkur hehe gott að vita að maður er enn uppáhaldsfrænka hehehe ég verð að plana eitthvað skemmtilegt með þeim meðan ég hef þá.
Núna er hins vegar kominn háttatími, Ingibjörn minn enn að leika sér í tölvunni þannig að ég kem mér fyrir og set einhvern stelpuþátt í gang hehe
bið að heilsa!
E.
Anna Lilja og Addi Bill áttu fallega stelpu í morgun, til hamingju með það elskurnar. Það er spurning hvort þessi göngutúr í gær sem ég hitti hana í hafi gert sitt en hún var orðin frekar þreytt á að mega ekki lengur keyra og vinna, það væri bara kominn tími á að klára þetta þá fyrst allt var hvort eð er orðið bannað! hehe
Næst er það svo Inga Rún en það styttist óðfluga í hennar kríli.
Ég er búin að vera að vesenast með lokaverkefnið mitt og það er loks alveg komið á hreint að ég fæ að byrja á því og gera það næstu önn sem þýðir þá útskrift í febrúar 2009. Eftir að því er lokið er það bara að fullorðnast og fá sér góða vinnu, þýðir ekki svona skólalíf lengur. Það er svo bara spurning hvar maður vill fara að vinna, ég hef svo sem ekki neinar miklar áhyggjur, ég þarf bara að gera upp við mig hvað ég vill helst gera og skoða í kringum mig.
Við sögðum krökkunum frá því um daginn að við værum að fara til Tenerife í sumar og guð gleðin sem skein úr andlitunum þeirra! þau eru svooo spennt og ég var reyndar búin að segjast ekki ætla að segja þeim það strax en svo var ég svo spennt líka að ég bara varð hehe ég er líka búin að panta flug til köben í ágúst fyrir mig og krakkana þannig að það verður nóg um að vera. Ég og Ingibjörn getum legið á sundlaugarbakkanum og drukkið kokteila jeee og svo verður það bara letilíf og brezzer í köben, kannski smá rósavín úr netto líka hehehe það verður æði!
Ég fer líka að vinna smá í sumar, ég verð ekki á endalausu flakki hehe er búin að ráða mig á leikskólann hérna á móti okkur, hugsa að ég sé alveg heilar 3 min að labba í vinnuna, þeas ef ég þarf að bíða eftir að komast yfir götuna hihi vona bara að sumarið verði gott og þá verður þetta bara allt æði!
Svo er líka búið að skipuleggja fjölskyldu veiðiferð með familíunni hans Ingibjörns í ágúst, þá verður víst veitt og slappað af og grillað og svona. Þannig að sumarið lítur vel út.
Það eru svo 3 vikur í að ég fái að knúsa Alexander og Patrek, get ekki beðið! ´Þeirra er sárt saknað :( og ólafar og hannesar að sjálfsögðu líka.
ég held annars að það sé ekki meir í bili..
E.
blogg blogg
ótrúlegt en satt að þá er lítið búið að vera að gerast hjá mér, skólinn er á fullu-hvað annað! er að taka heilar 18 ein núna sem ég er vel farin að finna fyrir, nóg að gera. Dagarnir hjá mér snúast um skipulagningu, reyna að læra, halda heimili og koma krökkunum í sínar tómstundir. Kristofer var að keppa alla síðustu helgi svaka stuð, lentu í 4 sæti í sínum riðli sem var frábært en þeir voru hundfúlir hehe en maður verður líka að læra að taka mótlæti í lífinu. Hann fór í magaspeglun í siðustu viku en við erum ekki enn búin að fá að vita neitt, vona að eitthvað fari að koma í ljós svo honum fari nú að líða betur. Annars eru þau bæði voða dugleg í handboltanum, sara er líka í kór og í leynifélagi ;) hehe hver man nú ekki eftir að hafa verið í leynifélagi? ég og anna vorum allavega í félagi þar sem við löbbuðum um og skriðfuðum niður bílnúmer hahahaha fyrir lögguna sko, ef þeir þyrftu einhverja aðstoð frá okkur seinna!
fullt af afmælum hjá okkur, Kristófer er orðinn 11 ára, til hamingju með það! Ingibjörn átti líka afmæli 7 febrúar, til hamingju með það elskan mín! og svo er það Sara mín sem verður 8ára bráðum. Nóg um að vera!
Ég ætlaði að stela kærastanum mínum um daginn og fara með hann upp í bústað og knúsa hann aðeins en nei, þá kom stormur aldarinnar hmmm.. ég skal ná honum! hehe maður verður víst að passa að rækta alla, sérstaklega þegar það er svona mikið að gera og maður er endalaust þreyttur eitthvað.
Svo í öllum þessum kulda fer maður auðvitað að spá í sumarið og við erum að hugsa um að fara í sólina og liggja í smá leti mmm.. það verður geggjað! svo ætla ég að reyna að fara með krakkana að heimsækja ólöfu og familíu. Ég hlakka svo til þessa alls! Stefnan hjá mér er að útskrifast næstu áramót, eða í febrúar réttara sagt, það kemur þó betur í ljós, ég krossa fingur!
Ég var svo heppin um daginn að ég vann 25 þús kr gjafabréf hjá flugleiðum en ég ætla að selja það af því ég get ekki notað það í okkar ferð þannig að ef það er einhver þarna sem vill kaupa það þá endilega hafið samband!
en jæja, ætla að fara að hætta þessu.. hlýtur að fara að koma pása og þá fer ég að kaupa mér gos og eitthvað til að halda mér vakandi!! hehehehe
kveð í bili
E.
seint blogga sumir..
það er bara dapurlega lítið í fréttum eitthvað, þetta týpíska prófastress að hellast yfir mann en ég get nú varla kvartað, fer bara í eitt próf en próf þó! svo eru verkefnaskil líka þannig að mér finnst allavega nóg að gera þegar maður er með börn og mann og heimili. Nóg að gera hjá krökkunum, bæði farin að æfa handbolta voða stuð. Krissi tók þátt í sínu fyrsta móti um helgina, móðurinni ekki til mikillar ánægju því mætingin á laugardagsmorguninn var kl 8 út á gróttu takk fyrir! á fætur kl 7 og svo skundað af stað. En hann skemmti sér vel og lærði heilmikið, þó lítið hafi farið fyrir sigrum þetta skiptið. Ég er nú bara stolt af honum að taka þátt litli strákurinn minn hehe. Við erum á leiðinni til köben eftir 2 vikur vei vei vei og ég verð að segja að ég er svooo spennt, ég sé ekki beint eftir að hafa flutt en það er bara svo mikið af góðu og yndislegu fólki þarna úti sem ég get ekki beðið eftir að hitta og knúsa, hundleiðinlegt að vera svona langt frá strákunum mínum og systur minni og Hannesi og öllum hinum. En við förum sem sagt út til þeirra allra, verslum, borðum og höfum gaman eins og alltaf er í köben! jeeee
framundan er nóg að gera, Kristófer og Ingibjörn eru að fara næsta laugardag að vinna í hvalfirðinum þar sem hægt er að höggva sér jólatré og í staðinn fáum við að fara þangað 9 des og höggva okkur tré fyrir jólin. Sara fer í afmæli á laugardaginn og sit ég og læri, vúhú. Á sunnudaginn förum við í aðventukaffi til systur hans Ingibjörns og svo mat til mömmu og pabba um kvöldið, þar inn á milli þarf ég að.. hvað haldiði? júbb læra!
helgina þar eftir munum við líklega skreyta á milli þess sem ég læri hehe skemmtilegt líf, og sunnudag er það jólatréshöggvun. þar á eftir kemur KÖBEN og svo þegar heim er komið verður það jólaunirbúningur á fullu takk fyrir!
stefnan er tekin á það að halda jól hérna heima bara og hafa það ofur kósý, en líklega förum við svo á smá flakk að heimsækja ömmur og afa.
ég hlakka til jólanna. mér finnst samt hundleiðinlegt að hafa ekki systur mína og þau öll hérna hjá okkur, en svona er þetta.
ég er farin að... LÆRA!!
so.. to sum it up, I will be studying the next week or so..
E.
